03.07.2010, kl.14:00 - 15:00
Skemmtanir
Danstvíeykið Vaðall kynnir - var það Gangári?
Gangári leiðir áhorfendur í gegnum sögu bæjarins með lifandi viðburðum
Gangárinn er náungi nokkur sem hefur verið uppi frá því fyrstu menn muna. Hann man allt sem gerst hefur, þekkir hvern krók og kima hvert sem litið er til sjávar eða sveita. Saga Hafnar er hans helsta áhugasvið um þessar mundir og hann ætlar að láta gamminn geysa og bjóða fólki í leiðsögn um Höfn á Humarhátíð. Hann mun leiða gesti í um klukkustundarlanga gönguferð um bæinn með sögum af götum, húsum, fólki, vættum og hverju öðru sem á leið hans verður. Gangárinn leggur af stað frá Pakkhúsinu klukkan 14:00 á laugardag og öllum er frjálst að fylgja honum eftir.
Umsjónaraðili
Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780
Höfn
menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod