Viðburðir þann

lambagrill á Humarhátíð
03.07.2010, kl.14:00 - 18:00 Skemmtanir

Sauðfjárbændur í Austur - Skaftafellssýslu grilla lambakjöt

Grill á hátíðarsvæði

Á Humarhátíð munu sauðfjárbændur í Austur-Skaftafellssýslu bjóða gestum og gangandi upp á grillað lambakjöt í samstarfi við Meistarafélag kjötiðnaðarmanna, sem mun sjá um matseldina. Með þessu veisluhaldi vilja sauðfjárbændur minna fólk á þá miklu sauðfjárrækt sem stunduð er í sýslunni og gæði lambakjötsins. Jafnframt vilja þeir leggja sitt af mörkum til að gera Humarhátíð að ennþá fjölbreyttari hátíð og hvetja því sem flesta til að koma við í grillvagninum og fá sér að smakka ljúffengt lambakjöt. Veislan hefst klukkan 14:00 á hátíðarsvæðinu og öllum er velkomið að smakka á kræsingunum. EfnisvalmyndTil baka
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica