Viðburðir þann

Besta myndin: Mjúkt
02.07.2010 - 03.07.2010 Skemmtanir

Ljósmyndamaraþon hefst við Pakkhúsið

Ljósmyndamaraþon á Humarhátíð

Að þessu sinni mun megin þema maraþonsins vera Humarhátíð 2010 en nánar upplýsingar um undirþema verða kynntar á hádegi á föstudag í Pakkhúsinu en þá hefst maraþonið formlega. Samkeppninni mun ljúka stundvíslega kl. 16 á laugardag og tekur þá Hafþór Bogi við myndum á tölvutæku formi í Pakkhúsinu. Hver þátttakandi getur skilað inn 2 myndum fyrir hvert þema og verða myndirnar að vera merktar bæði keppanda og þema. Glæsileg verðlaun eru í boði en þau verða veitt fyrir Bestu myndaröðina, Bestu myndina og Skemmtilegustu lausnina. Verðlaunaafhending mun fara fram á laugardagskvöldi á aðalsviði hátíðarinnar og verða myndirnar til sýnis í Heimamarkaðsbúðinni í Pakkhúsinu eftir að maraþoninu lýkur.

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica