Viðburðir þann

veggurinn minn
10.05.2010 - 17.05.2010, kl.9:00 - 17:00 Sýning

Veggurinn minn

Gingó á vegginn minn þessa vikuna

Gingó á vegginn minn þessa vikuna. Verkið nefnist Vorboðinn og er akrýl málverk sem Gingó kláraði að mála í maí 2010. Verkið er af Fífli og Biðukollu en Fífillinn er betri vinur manns en Biðukollan þar sem að hún sáir út fræjum sínum í þúsunda tali og Fífillinn birtist svo þegar byrjar að vora. Myndin er til sölu og kostar 70.000 krónur. Hægt er að senda Gingó tölvupóst á netfangið sljettan@gmail.com til að fá upplýsingar um myndina. Gingó opnaði sýningu á Kaffihorninu 4. maí síðastliðinn en sú sýning heitir Húsamyndir og inniheldur myndir af allskonar húsum. Verkin eru öll akrýl verk og sýningin er sölusýning. Þetta er fjórða sumarið sem að Gingó setur upp sýningu á kaffihorninu.

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica