26.04.2010 - 03.05.2010, kl.9:00 - 17:00
Skemmtanir
Veggurinn minn
Vegginn minn eiga María Gísladóttir og Ari Þorsteinsson
María Gísladóttir og Ari Þorsteinsson eiga vegginn minn.
Veggurinn okkar.
Magnús Tómasson (f. 1943) er helst þekktur í dag fyrir að vera einn af stofnendum SÚM-hópsins, fyrir ljóðræna skúlptúra úr óhefðbundnum efnum, svo og fyrir öflug útilistaverk. Hann hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum á Íslandi og erlendis og hann hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir list sína.
Verk eftir hann eru m.a. i eigu Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur og flestir íslendingar kannast við verk hans, Þotuhreiður, sem staðsett er við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Verkið sem hér er sýnt er úr myndaröð sem heitir “Skapandi stærðfræði„ og samanstendur af nokkrum verkum þar sem listamaðurinn tekur þekkta málshætti eða orðtök úr tungumálinu, slítur þau í sundur og setur í nýtt samhengi á myndrænan hátt.
Orðatiltækin eru eftirfarandi.
Gera úlfalda úr mýflugu.
Fjöðrin sem varð að fimm hænum
(Ævintýrið, það er alveg satt eftir H.C.Andersen)
Troða úlfalda í gegnum nálarauga eða eins og segir í Nýja Testamentinu;
Enn segi ég: Auðveldara er úlfalda að fara í gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.
Á okkar mynd er fjöðrin orðin samasem úlfaldi en þessa mynd fengum við hjónin í brúðkaupsgjöf frá vinum okkar á Höfn.
Ég setti mig einu sinni í sambans við Magnús og langaði til að eignast fleiri verk úr seríunni en það var alveg vonlaust, þau voru öll komin í einkaeign.
Umsjónaraðili
Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780
Höfn
menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod