16.04.2010 - 23.04.2010, kl.9:00 - 17:00
Sýning
Vegginn minn þessa vikuna á Hrafnhildur Gísladóttir
Veggurinn minn
Vegginn minn þessa vikuna á Hrafnhildur Gísladóttir
Verkin á veggnum þessa vikuna eru eftir Gísla Eystein Aðalsteinsson. Gísli hefur teiknað í fjölda ára og eru margir Hornfirðingar sem eiga teikningar eftir hann. Myndirnar sem eru til sýnis þessa vikuna teiknaði Gísli árið 2007 og 2008 eru gerðar eftir ljósmyndum af gömlum húsum hvaðanæva af landinu. Myndirnar eru átta talsins og í póstkortastærð. Nokkrar myndanna eru frá Hornafirði, má þar nefna gamla bíóbraggann og Nýabæ. Einnig eru myndir af húsinu Grænahlíð í lóni, húsinu Austurríki í Mikley og Gangnamannakofa í Eskifelli. Ein myndanna er teiknuð af kirkjunni á Borgargfirði Eystri og einnig er mynd af húsi frá ströndum. Tvær myndanna eru hugarflugsmyndir Gísla og eru þær af rjúpum. Myndirnar eru hægt að skoða á bókasafninu fram á mánudag.
Umsjónaraðili
Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780
Höfn
menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod