Viðburðir þann
Kynningarfundir
vegna verndaráætlunar fyrir suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs
Kynningarfundir vegna gerðar verndaráætlunar fyrir suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs verða haldnir:
Mánudaginn 8. febrúar í Mánagarði í Nesjum.
Miðvikudaginn 10. febrúar í Hofgarði í Öræfum.
Fundirnir hefjast klukkan 20:00.
Á fundunum verða kynnt drög að verndaráætlun fyrir suðursvæði þjóðgarðsins. Fundargestum gefst kostur á að koma ábendingum og athugasemdum við drögin á framfæri. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta!



