Viðburðir þann

Listamaðurinn Erró
08.01.2010 - 15.01.2010, kl.9:00 - 17:00 Sýning

Veggurinn minn

Vegginn minn þessa vikuna á Björg Erlingsdóttir

Vegginn minn þessa vikuna á Björg Erlingsdóttir Fyrir nokkrum árum fór Björg til Parísar ásamt samstarfsfólki sínu á Listasafni Reykjavíkur. Í heimsókninni heimsóttum þau m.a. Erró sem er búsettur í borginni stærstan hluta ársins. "Það var mikil upplifun að hitta Erró og kynnast hans högum, heimsækja vinnustofuna hans og ferðast með honum vítt og breitt um borgina. Í lok ferðarinnar færði hann okkur að gjöf verk eftir sig". Verkið er grafíkmynd úr seríu sem Erró vann 1976, Serie Tableaux Chinois og kallast myndin Næturvörðurinn eða Le Gardienne de Nuit. "Mér þykir einkar vænt um þetta verk enda vann ég í nokkur ár á Listasafni Reykjavíkur þar sem mörg þúsund verk Errós eru varðveitt, skissur, olíumálverk, grafíkverk og skúlptúrar. Minnisvarðar litríkrar ævi eins helsta listamanns þjóðarinnar og ákveðin forréttindi að fá að handleika fjársjóði hans og vinna innan um hugverk hans og annarra merkra listamanna þjóðarinnar".
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica