Viðburðir þann

WOW
21.10.2009 - 22.10.2009 Skemmtanir

Haustþing Ríkis Vatnajökuls

Sjálfbær ferðaþjónusta – Umhverfis- og skipulagsmál

Ferðaþjónustu, matvæla og menningarklasinn Ríki Vatnajökuls í samstarfi við Háskólasetur á Hornafirði mun standa fyrir opnu málþingi í Nýheimum á Höfn 21.-22. október 2009. Umfjöllunarefnið verður umhverfis- og skipulagsmál í ferðaþjónustu á Íslandi og er málþingið opið öllum.
Uppskeruhátíð Ríkis Vatnajökuls verður haldin í kjölfar málþingsins á miðvikudagskvöldi. Þar munu aðilar í Ríkinu gæða sér á góðum mat og skemmta sér saman eftir annasamt og gæfuríkt sumar. Öllum er frjálst að taka þátt í fögnuðinum gegn vægu gjaldi.

Skráning á málþingið fer fram hjá Söndru Björgu hjá Háskólasetrinu á Höfn í síma 470-8044 eða á netfanginu sbs@hi.is. Lokadagur skráningar er sunnudaginn 18. október. Ekkert þátttökugjald er á málþinginu.

Dagskránna má nálgast hér (pdf)

 

Dagskrá

 

Kl. 9.00 – 9.10 Ólöf Ýrr Atladóttir – Setning málþings
Kl. 9.10 – 9.30 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson – Hagræn áhrif skipulags
Kl. 9.30 – 9.50 Sigbjörn Kjartansson – Deiliskipulag – tilgangur ?
Kl. 9.50 – 10.10 Egill Guðmundsson – Vistvænir áningarstaðir
Kl. 10.10 – 10.20 Regína Hreinsdóttir – 252.362
Kl. 10.20 – 10.40 KAFFI

Kl. 10.40 – 10.50

Kl. 10.50 – 11.10

Haukur Ingi Einarsson – Staðardagsskrá í sveitarfélaginu Hornafirði - staða og stefna

Stefán Gíslason – Sveitarfélög og fyrirtæki á sama báti

Kl. 11.10 – 11.30 Sveinn Rúnar Traustason – Stöðlun, vottun og skipulag ferðamannastaða
Kl. 11.30 – 12.00 Umræður
Kl. 12.00 – 13.00 HÁDEGISVERÐUR á Kaffihorninu og Mullers æfingar
Kl. 13.00 – 13.40 Háskólasetrið á Hornafirði – Þróun sjálfbærar ferðaþjónustu
Kl. 13.40 – 14.00 Berglind Viktorsdóttir, F.B. – Reynsla F.B. af Green Globe vottunarferlinu
Kl. 14.00 – 14.20 Erna Hauksdóttir, SAF – Hugvekja um umhverfis- og skipulagsmál
Kl. 14.20 – 14.40 Anna Dóra Hermannsdóttir á Klængshól – Jarðerni
Kl. 14.40 – 15.00 KAFFI
Kl. 15.00 – 16.30 Pallborðsumræður
Kl. 16.30 – 16.40 Rósa Björk Halldórsdóttir – Lokaorð og ráðstefnu slitið

Umsjónaraðili

Ríki Vatnajökuls ehf
Litlubrú 2, Nýheimum

info@rikivatnajokuls.is
www.visitvatnajokull.is
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica