Viðburðir þann

18.06.2009, kl.20:00 Sýning

"Handan við Hornið*"

Heitasti sjónvarpsþátturinn

Það eru þeir Ásgrímur Arason, Óli Albert Sævarsson, Óli Kristján Benediktsson og Hörður Þórhallsson sem eru heilarnir á bak við Handan við hornið. Nemendum í Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu ásamt fleirum stóð til boða að taka þátt í námskeiðinu Sóknarbraut sem framhaldsskólinn ásamt Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Þekkingarneti Austurlands stóð fyrir nú á vorönn. Námskeiðinu lauk með kynningu þátttakenda á verkefnum sínum og hugmyndum og skemmst er frá því að segja að þó nokkur þessara verkefna eru orðin að veruleika í dag. Eitt þessara verkefna, Handan við hornið, sjónvarpsþáttur með fréttum og léttu glensi úr Hornafirði verður sent út á Skjávarpinu í kvöld, fimmtudag kl. 20 Hægt er að sjá Skjávarpið á slóðinni www.rikivatnajokuls.is undir skjávarp í beinni

Umsjónaraðili

SkjáVarp
Fiskhóll 11

skjavarp@hatidni.is
www.hatidni.is
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica