Viðburðir þann

Minnisvarðinn
06.06.2009 - 07.06.2009, kl.11:00 - 16:00 Afþreying

Söguhelgi á Suðausturlandi

Opnunarhátíð Söguslóðar á Suðausturlandi

Dagskrá verður á Djúpavogi 6. júní þar sem Marteinn H Sigurðsson norrænufræðingur fjallar um Papa og Papaörnefni í Vestur Evrópu og Þorvaldur Friðriksson fréttamaður um keltnesk áhrif á Íslandi. Siglt verður út í Papey og söguslóðir þar kannaðar.

Daginn eftir 7. júní verður sama dagskrá flutt í Þórbergssetri og farið í ferðalag í Papbýli í Steinadal að skoða þar ævafornar fornleifar sem fundust fyrir nokkrum árum og sanna búsetu þar fyrir árið 1000.

Allir eru velkomnir á opnunarhátíð í Löngubúð og Þórbergssetri, en panta þarf sérstaklega í ferðina í Papey kl 14:00 laugardaginn 6. júní.

Dagskrá Opnun söguslóðar í Löngubúð og formleg opnun verkefnisins Söguslóðar á Suðausturlandi

Laugardagur 6. júní

11:00 Opnun söguslóðar í Löngubúð
11:30 Heimamaður ávarpar samkomuna
11:50 Papar fyrir vestan haf og sögulegur bakgrunnur þeirra: Marteinn H Sigurðsson
12:20 Léttar veitingar, súpa og brauð
12:50 Keltnesk orð og örnefni, Þorvaldur Friðriksson fréttamaður
13:20 Sýningar skoðaðar
14:00 Ferð til Papeyjar

Opnun söguslóðar í Þórbergssetri og formleg opnun verkefnisins Söguslóð á Suðausturlandi

Sunnudagur 7. júní

11:00 Opnun söguslóðar í Þórbergssetri
11:30 Heimamaður ávarpar samkomuna
11:50 Papar fyrir vestan haf og sögulegur bakgrunnur þeirra: Marteinn H Sigurðsson
12:20 Léttar veitingar, kjötsúpa og brauð
12:50 Keltnesk áhrif á Íslandi, Þorvaldur Friðriksson
13:20 Sýningar skoðaðar
14:00 Ferð í Papbýli

Umsjónaraðili

Þórbergssetur
Hala, Suðursveit

thorbergssetur@simnet.is
www.thorbergssetur.is
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica