Viðburðir þann

Lundi
23.05.2009 Sýning

Fagurt galaði fuglinn sá

Ljósmyndasýning í Skaftafellsstofu og fyrirlestur um fuglana í garðinum

Laugardaginn 23. maí verður opnuð ljósmyndasýning í Skaftafellsstofu á vegum Fuglaverndar með fjölbreyttum og einstaklega fallegum ljósmyndum af íslenskum fuglum eftir fjölda fuglaljósmyndara. Einar Ó Þorleifsson mun fylgja sýningunni úr hlaði með fyrirlestri um fuglana í garðinum kl. 14. sama dag. Sýningin stendur til 30. júní. Opnunartími Skaftafellsstofu í maí er frá 10 – 16, frá 1. til 15. júní frá 9 – 19 og frá 16. júní til 20. ágúst verður opið frá 8 – 21. Allir velkomnir. Ljósmyndarar sem taka þátt í sýningunni eru: Björn Arnarson Einar Guðmann Gyða Henningsdóttir Hrafn Óskarsson Jakob Sigurðsson Ómar Runólfsson Óskar Andri Rán Magnúsdóttir Skúli Gunnarsson Sigurður Ægisson Sindri Skúlason Þórir Níels Kjartansson

Umsjónaraðili

Vatnajökulsþjóðgarður

 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica