Viðburðir þann

Merki Sjálstæðisflokksins
14.03.2009, kl.10:00 - 18:00 Ýmislegt

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fer fram laugardaginn 14. mars.

Í Austur Skaftafellssýslu verður kosið sem hér segir:

Höfn Pakkhúsinu kl. 10 – 18
Nes Mánagarði kl. 14 – 18
Öræfi Hofgarði kl. 10 – 11
Suðursveit Hrolllaugsstöðum kl. 12 – 13
Mýrar Holti á Mýrum kl. 14 – 15
Lón Fundarhúsinu Lóni kl. 16 – 17

Hverjir mega kjósa?

a) Allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi sem þar eru búsettir og náð hafa 16 ára aldri prófkjörsdaginn.
b) Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarrétt í Suðurkjördæmi við alþingiskosningarnar 2009 og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í kjördæminu fyrir lok kjörfundar. - Athugið að þeir sem ekki eru Íslenskir ríkisborgarar og á aldrinum 16 – 18 ára, þ.e. þeir sem ekki eru flokksbundnir sjálfstæðismenn, þurfa að ganga í Sjálfstæðisflokkinn fyrir kl. 17  fimmtudaginn 12. mars.

Hvernig á að kjósa?

Kjósa skal 6 frambjóðendur, hvorki fleiri en né færri. Kosið skal með því að setja tölustafina 1 til 6 fyrir framan nöfn frambjóðenda. Þannig skal kjósandi setja töluna 1 fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem hann óskar að hljóti fyrsta sætið í prófkjörinu, töluna 2 fyrir framan nafn þess sem hann vill að hljóti annað sætið í prófkjörinu, töluna 3 fyrir framan nafn þess sem hann vill að hljóti þriðja sætið í prófkjörinu og þannig koll af kolli þar til kosnir hafa verið 6 frambjóðendur.

Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla

Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla í Austur Skaftafellssýslu fer fram sem hér segir:

Sjálfstæðishúsinu, Kirkjubraut 3, Höfn í Hornafirði til og með föstudagsins 13. mars alla virka daga klukkan 17 – 19

Nánari upplýsingar um prófkjörið má finna á profkjor.is

Umsjónaraðili

Sjálfstæðisfélag
Kirkjubraut 3

xd@hfn.is
www.hornafjordur.is/xd
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica