Viðburðir þann
Bókamessa í Þórbergssetri
Í aðdraganda jóla
Í aðdraganda jóla
Þjóðtrú og alþýðumenning
Dagskrá í Þórbergssetri
sunnudaginn 30.nóvember kl. 14:00
1.Alþýðumenning og skaftfellsk alþýðuskáld
Stuttur inngangur Þorbjörg Arnórsdóttir
2.Litir og ljóð,
Guðjón Sveinsson frá Breiðdalsvík kynnir nýútkomna
ljóðabók sína
3.Gullhyrna og Soffía
Aðventusaga úr Suðursveit frá árinu 1958,
höfundur Steinþór Þórðarson Hala
4.Vébönd
Magnús Stefánsson kynnir nýja ljóðabók Þorsteins
Bergssonar frá Unaósi.
5.Skaftfellsk ljóð
Pálína Þorsteinsdóttir kynnir og les ljóð eftir föður sinn
Þorstein Jóhannsson frá Svínafelli
6.Skaftfellsk alþýðuskáld flytja eigin ljóð
Komið og sjáið hverjir mæta á staðinn
7.Þytur eilífðarinnar,
Kári Kristjánsson landvörður flytur efni sem er byggt á
litskyggnum, sögum og ljóðum fólks sem hefur tengst
stórbrotnu landslagi norðan Vatnajökuls og á
Öskjusvæðinu. Við fetum að hluta fáfarnar slóðir og
skoðum og kynnumst fyrirbærum sem fáir þekkja.
Kaffiveitingar í hléi
Séra Einar G. Jónsson lífgar upp á jólastemninguna og sest við píanóið
Allir velkomnir!
Umsjónaraðili
ÞórbergsseturHala, Suðursveit
thorbergssetur@simnet.is
www.thorbergssetur.is



