Viðburðir þann

Hafnarkirkja böðuð bleiku ljósi
05.10.2008, kl.12:00 Félagasamtök

Ganga til styrktar rannsóknum á brjóstakrabba

Kvennakór Hornafjarðar stendur fyrir gönguferð til styrktar rannsóknar á brjóstakrabbameini. Boðið verður upp á 3 vegalengdir og það eiga allir að geta verið með, ungir sem aldnir, jafnt konur sem karlar, börn og unglingar. Þrjár frískar konur leiða gönguhópana fyrir okkur og er ætlunin að hafa þetta létta og skemmtilega göngu.
Mæting er á íþróttavöll kl. 12 og verður tekin létt upphitun þaðan munu síðan göngurnar fara.
Boðið verður upp á heitt kakó eftir gönguna við sundlaugina og svo fá allir göngugarpar frítt í sund.

Skráningargjald er 1000 kr. yrir 12 ára og eldri.  Einnig verður tekið við frjálsum framlögum. Skráning verður á staðnum.

www.kvennakorhornafjardar.is

Umsjónaraðili

Kvennakór Hornafjarðar

kvennakor@hornafjordur.is
http://www.kvennakorhornafjardar.is
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica