Viðburðir þann

Karlakórinn Jökull
26.09.2008 - 31.10.2008, kl.12:00 Sýning

Karlakórinn Jökull 35 ára

-afmælissýning

Föstudaginn 26. september verður opnuð í Nýheimum glæsileg sýning Karlakórsins Jökuls. Sýningin spannar 35 ára sögu kórsins sem var stofnaður á bændafundi árið 1972 með þátttöku manna úr flestum hreppum Austur?Skaftafellssýslu. Karlakórinn hefur starfað óslitið síðan veturinn 1973 og verður farið yfir tónleikasögu kórsins á sýningunni þar sem sýndar verða myndir frá tónleikaferðum, árshátíðum og öðrum viðburðum á plasmaskjá. Einnig eru til sýnis persónulegir munir kórmanna, ásamt kórfötunum sem þeir hafa notað í gegnum tíðina. Hægt er að hlusta á allt útgefið efni Kórsins og má þar nefna diskana Það kom söngfugl að sunnan og Í jöklanna skjóli. Sýningin er samstarfsverkefni Menningarmiðstöðvar og Karlakórsins Jökuls og verður opin öllum næsta mánuðinn. Sýningin verður opnuð formlega kl 12:00 á hádegi á föstudeginum með ljúfum söng frá karlakórsmönnum sem mæta á staðinn af þessi tilefni.

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica