Viðburðir þann
Kynningarfundur Stígamóta
Þjónusta Stígamóta á Suðurlandi
Stígamót bjóða upp á ókeypis viðtalsþjónustu og sjálfshjálparstarf fyrir konur og karla sem beitt hafa verið hvers kyns kynferðisofbeldi. Þjónustan hefur hingað til fyrst og fremst nýst á höfuðborgarsvæðinu. Eftir myndarlega fjáröflun Zontakvenna hefur verið ákveðið að auka og bæta þjónustuna við fólk sem býr utan höfuðborgarsvæðisins.
Þegar er hafin reglubundin þjónusta á Austurlandi og næst er það Suðurland. Starfsfólk Stígamóta mun kynna tilraunaverkefnið á Höfn í Hornafirði, í Vestmannaeyjum og í Árborg dagana 1.-4. september. Haldnir verða lokaðir fundir með fagfólki á hverjum stað, framhaldsskólar verða heimsóttir og boðið verður upp á opna kynningarfundi, ásamt kynningum í fjölmiðlum.
Starfið mun fara þannig fram að Sunnlendingar sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi geta hringt til Stígamóta í síma 5626868 og pantað tíma og fá þá að vita hvar og hvenær þeim bjóðast viðtöl. Þjónustan verður ókeypis. Algjörum trúnaði er heitið. Fólk er hvatt til þess að hringja sem fyrst þannig að hægt verði að meta þörfina fyrir þjónustuna.
Umsjónaraðili
NýheimarLitlubrú



