Viðburðir þann
Súpufundur Samfylkingarinnar
Súpufundur með þingmönnum Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi
Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra og Lúðvík Bergvinsson, formaður þingflokks Samfylkingarinnar bjóða Hornfirðingum á súpufund þriðjudaginn 1. júlí 2008 kl. 12:00 í Pakkhúsinu. Sérstakur gestur fundarins verður Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar og þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Einnig mun dr. Jón Þór Sturluson, hagfræðingur og aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, flytja erindi undir yfirskriftinni: Hverju skilar Evran fyrir mig?
Aðalumræðuefni fundarins verða efnahags ?og byggðamál í víðum skilningi. Auk þeirra verður hægt að taka upp þau mál sem fundargestir vilja ræða við ráðherra og þingmenn.
Umsjónaraðili
Samfylkingin á HornafirðiHafnarbraut 36
xs@hfn.is
www.hornafjordur.is/xs



