Viðburðir þann
Ljósmyndanámskeið
Fyrir byrjendur og lengra komna
Námskeiðið er haldið í Nýheimum.
Ljósmyndanámskeiðið eru fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í ljósmynduninni og einnig þá sem vilja öðlast meiri þekkingu. Á þessu 8 klst. námskeiði er farið í helstu stillingaratriðin á stafrænni myndavél svo sem: ljósop, hraða, ISO, White Balance, flass, pixla, jpg/raw ofl. Almenn myndataka er útskýrð og gefin ýmis góð ráð til að ná betri myndum, ma.af fólki, landslagi, nærmyndum, norðurljósum ofl. Auk þess er farið í myndbyggingu. Mismunandi linsur eru kynntar og notkun á filterum.
Tölvumálin eru tekin fyrir og ma. sýnt hvernig hægt er að koma skipulagi á myndasafnið á einfaldan hátt, geyma myndir með öruggum hætti ofl. Ýmis forrit verða kynnt sem koma að góðum notum.
Leiðbeinandi er Pálmi Guðmundsson GSM 898 3911 Námskeiðið er 2 x 4 klst. og kostar 14.900 kr. Skráning á námskeiðið er á vefsíðunni www.ljosmyndari.is
Umsjónaraðili
NýheimarLitlubrú



