Viðburðir þann
Stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs
í boði umhverfisráðherra
Stofnhátíðin verður haldin samtímis á fjórum rekstrarsvæðum garðsins:
í Gljúfrastofu í Jökulsárgljúfrum, á Skriðuklaustri í Fljótsdal,
í Skaftafellsstofu í Skaftafelli og í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri.
Ræðum ráðherra og stjórnarformanns verður sjónvarpað beint frá Skaftafelli,
en einnig munu svæðisráðsformenn ávarpa hátíðina hver á sínu svæði.
Boðið verður upp á skemmtiatriði og veitingar.
Rútuferðir:
Frá Reykjavík; lagt verður upp frá Íþróttahúsi Kennaraháskóla Íslands við Háteigsveg kl. 9:00 Stoppað verður við Söluskála Olís á Hellu kl. 10:30 og teknir farþegar. Rútan stoppar á Kirkjubæjarklaustri og endar í Skaftafelli. Til baka frá Skaftafelli kl. 18:00 með viðkomu á Kirkjubæjarklaustri kl. 19:00 og síðan Hellu og áætluð koma til Reykjavíkur við Íþróttahús KHÍ kl. 23.
Frá Akureyri; lagt upp frá Umferðarmiðstöð SBA á Akureyri kl. 12:00, stoppar á Húsavík við bensínstöð N1 kl. 13:30 og teknir farþegar og endar við Gljúfrastofu í Ásbyrgi. Til baka frá Ásbyrgi kl. 18:00.
Frá Egilsstöðum; lagt upp frá Söluskála KHB kl. 14:00 að Skriðuklaustri. Til baka kl. 18:00.
Frá Höfn; lagt upp frá Nýheimum kl. 13:00 til baka 18:00 frá Skaftafelli
Vinsamlega athugið að gestir þurfa að bóka sig í rútuferðirnar fyrir 5. júní nk.hjá Umhverfisráðuneytinu í síma 545 8600, netfang postur@umh.stjr.is.
Allir velkomnir.



