Viðburðir þann

Matvæli í ríki Vatnajökuls
23.05.2008, kl.14:00 - 17:00 Málþing

Matvæli í ríki Vatnajökuls

Ferðaþjónustu-, menningar- og matvælaklasinn Ríki Vatnajökuls efnir til málþings og umræðna um tækifæri í samtvinningu matvælaframleiðslu, ferðamennsku og menningar á Suð-austurlandi.   Á málþinginu verður lögð sérstök áhersla á að kynna og ræða möguleika sem liggja í fullvinnslu afurða yfir í sælkeravörur og sóknartækifæri í sameiginlegri markaðsetningu þeirra innan svæðis. Á málþinginu verða m.a. tekin dæmi um sælkeraafurðir í þróun, kynntar tillögur að matvælamerki svæðisins, sagt frá alþjóðlegum samstarfsverkefnum og gerð grein fyrir uppbyggingu vöruþróunaraðstöðu á Suð-austurlandi.

Málþingið fer fram í Mánagarði í Nesjum 23. maí n.k. 

Dagskrá málþingsins er eftirfarandi:

14:00   Rósa B. Halldórsdóttir                                Í Ríki Vatnajökuls

14:15   Guðmundur H. Gunnarsson                        Vöruþróun og matvæli

14:35   Ari Þorsteinsson                                        Um freistandi ferðaminjar

14:55   Brynhildur Pálsdóttir                                  Tækifæri í matarhönnun

15:10   Marteinn Njálsson - Árni Snæbjörnsson        Beint frá Býli

15:25   Grétar Már Þorkelsson                                Sérkenni Kartöfluræktar í Hornafirði

15:45   Afurðir svæðisins kynntar á hlaðborði í boði framleiðanda.

Kynning á ítölsku víni í boði Ekrunnar ehf.

Yfir hlaðborði verða umræður um ýmis málefni sem tengjast klasanum.

16:55 Fundi slitið

 

Málþingið er öllum opið 

Nánari upplýsingar um málþingið veitir

Rósa B. Halldórsdóttir í síma 896-7084

eða í tölvupósti (rosa@rikivatnajokuls.is)

 

Um Ríki Vatnajökuls
Ferðaþjónustu-, menningar- og matvælaklasinn Ríki Vatnajökuls var formlega stofnaður sumarið 2007.  Innan klasans starfa nú 74 aðilar (einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir).  Sameiginlegt markið er að efla atvinnu- og mannlíf á suð-austurlandi með þverfaglegu samstarfi um samtvinningu ferðaþjónustu, menningar og matvælaframleiðslu. 

 

Sveitarfélagið Hornafjörður og Vaxtasamningur Austurlands hafa stutt við verkefnið.

 

Umsjónaraðili

Mánagarður
Mánagarði

 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica