Viðburðir þann

steintryggur
14.05.2008, kl.21:00 Tónleikar

Tónleikar í Pakkhúsinu

Hljómsveitin Steintryggur

Hljómsveitin Steintryggur er fyrirbrigði sem er ekki öllum kunnugt en framleiðir sérstaka og óvenjulega tónlist sem byggir í grunninn á trommupælingum þeirra Sigtryggs Baldurssonar og Steingríms Guðmundssonar í bland við þjóðleg hljóðfæri og söng héðan og þaðan úr heiminum.
Diskurinn Trappa er nýkomin út og var hann unninn á fjögurra ára tímabili og tekinn upp í ýmsum löndum og eru gestaleikarar margir og viða að.Fór eftirvinnsla fram með Ben Frost frá Ástraliu bæði í Wales og í Breiðholti. Hyggjast Steintrygg menn nú leggja upp í hringferð um landið í mai. Á tónleikum hafa þeir sér til meðreiðar þá Ben Frost sem sér um tölvur og hljóð og Kippa Kaninus sem leikur á kjálkahörpur og syngur og sér um myndbönd en tónleikarnir hafa viðeigandi myndskreytingar. Lofað er hávaðasamri og heilbrigðri skemmtan.

Leikið verður á eftirfarandi stöðum:
14. maí Höfn - Pakkhúsið kl.21.00
15. maí Húsavik - Gamli Baukur kl.21.00
16. maí Akureyri - Græni Hatturinn kl.22.00
17. maí Isafjörður - Edinborgarhúsið kl.22.00
18. maí Stykkishólmur - Vatnasafnið kl.20.00

Hér til hliðsjónar eru nokkur myndskeið sem varpa ljósi á fyribrigðið.

Hljómsveitin Steintryggur flytur lagið Melur í sjónvarpi

og nýlegar myndir frá tónleikum í Belgiu 30 april.

http://www.myspace.com/steintryggur

Umsjónaraðili

Pakkhús

 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica