Viðburðir þann

Landsmótsskvísan
25.04.2008 - 27.04.2008 Kvennakór Hornafjarðar

Landsmót ísl. kvennakóra

Hingað koma 13 kvennakórar víðs vegar af landinu,svo hér verða hátt á fjórða hundrað syngjandi konur þessa helgi. Mótið hefst á föstudegi og lýkur á sunnudeginum. Það verða tónleikar bæði laugardaginn 26. og sunnudaginn 27.apríl Á laugardeginum flytur hver kór, lög af sinni dagskrá. Á sunnudeginum verður afrakstur vinnuhópana fjögurra fluttur, og á fjórða hundrað konur syngja saman við undirleik stórhljómsveitar Jóhanns Morávek, sem stofnuð er fyrir þetta tækifæri. Þar verður frumflutt Landsmótslag, sem samið var sérstaklega fyrir mótið, af tónskáldinu Þóru Marteinsdóttur, við texta Guðbjartar Össurarsonar , sem kórarnir hafa verið að æfa og undirbúa og verður án efa skemmtilegt, ekki síst fyrir Hornfirðinga, að hlýða á.

Tónleikarnir eru kl. 16 á laugardeginum og kl. 14 á sunnudeginum og er aðgangur ókeypis! Allir velkomnir!

Dagskrá fyrir mótið má finna undir Landsmót

Umsjónaraðili

Kvennakór Hornafjarðar

kvennakor@hornafjordur.is
http://www.kvennakorhornafjardar.is
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica