Viðburðir þann

21.04.2008, kl.20:00 Málþing

SAFT málþing

Þú ert það sem þú gerir á netinu

Markmið málþingsins er að draga annars vegar fram sýn nemenda og hins vegar foreldra og kennara á helstu kostum og göllum Netsins. Einnig verður áhersla lögð á að fá fram framtíðarsýn hópanna varðandi örugga og ánægjulega notkun og þróun Netsins. Þátttakendur vinna fyrst í tveimur málstofum en málþinginu lýkur með sameiginlegri málstofu nemenda, foreldra og kennara þar sem gerð verður grein fyrir niðurstöðum. Málþingið er öllum opið og þátttökugjald er ekkert. Nemendur á aldrinum 11 - 16 ára eru sérstaklega boðnir velkomnir ásamt foreldrum sínum og kennurum. Mikilvægt er að þessir aðilar styðji við forvarnir í netöryggismálum.

www.saft.is

Umsjónaraðili

Nýheimar
Litlubrú

 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica