Viðburðir þann

Nálhús
17.04.2008 - 18.04.2008 Málþing

Ferðaminjar - Málþing um handverk og hönnun

Málþing um handverk, hönnun, mat og minjagripi haldið í Nýheimum Höfn, Hornafirði 17. og 18. apríl 2008.

Málþingsstjóri:Björg Erlingsdóttir forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar

 

Fimmtudagur 17. apríl

12.30 – 13.00   Afhending gagna

13.00 -  13.15   Setning:  Björg Erlingdóttir, forstöðumaður MMH

13.15 – 13.45    Handunnin hátíska: Ágústa Arnardóttir

14.00 - 14.30    Freistandi ferðaminjar:   Ari Þ. Þorsteinsson

14.30 – 15.00   Styrkleikar-veikleikar –ónýtt tækifæri á Austurlandi: Signý Ormarsdóttir

15.00 – 15.30   Kaffihlé

15.30 -  16.00   Handverk til atvinnusköpunar:  Rósa Björk Halldórsdóttir

16.00 -  16.30   Umræður og samantekt

16.30 -  19.00   Heimsókn í Handraðann – frjáls tími

19.00               Kvöldverður á Hótel Höfn

 

 

 

Föstudagur 18. apríl

09.00 –              Mæting

09.05 -    9.35    Matvæli sem minjagripir:      Guðmundur H. Gunnarsson

09.35 –  10.05    Hvað, hvar og hvernig,  markaðssetning á handverki og listiðnaði :

                         Sunneva Hafsteinsdóttir

10.05 -  10.15     Hugleiðingar leikmanns: Eyrún Axelsdóttir

10.15 – 10.30     Economuseum/Hagleikssmiðja:  Ari Þ. Þorsteinsson

10.30 – 11.00     Kaffihlé

11.00 -  11.30     Umræður, samantekt, skipað í hópa

11.30 -  12.30     Hópastarf

12.30 – 13.30     Hádegisverður á Kaffi Horninu

13.30 – 14.30     Hópastarf

14.30 – 15.30     Kynning úr hópastarfi

15.30  - 15.45     Þingslit

15.45                 Síðdegiskaffi

 

 

Hópar:

Samvinna handverksfólks á Austurlandi

Hópstjóri:  Signý Ormarsdóttir – Menningarráð Auturlands

 

Sýningar

Hópstjóri: Sunneva Hafsteinsdóttir – Handverk og hönnun

 

Námskeiðshald

Hópstjóri:  Stefanía Kristinsdóttir – Þekkingarnet Austurlands

 

Markaðs- og kynningarmál

Hópstjóri:  Katla Steinson – Markaðsstofa Austurlands

 

Tilboð og afslættir í tenslum við málþingið.

Hótel Höfn: eins manns herbergi með baði og morgunverði kr. 5.900, tveggja manna herbergi með baði og morgunverði kr. 7.700

Ásgarður: Eins manns herbergi með bað kr. 4.000.- morgunverður kr. 850.- tvegggja manna herbergi með baði kr. 6.000.- Morgunverður kr. 850.-

Hvammurinn: 2ja manna hergergi án baðs kr. 6.000.- morgunverður innifalinn.

Flugfélagið Ernir: Flugfar Rvk-Hfn-Rvk. býður 20% afslátt í tengslum við málþingið.

 

 

Málþingið er á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar en Menningarmiðstöðin er aðili að Menningarráði Austurlands og gegnir hlutverki miðstöðvar bókmennta og handverks á Austurlandi

Tilgangur málþingsins er m.a. að efla handverk og hönnun á Austurlandi og draga fram þau sérkenni sem þar er að finna í mat og minjum. Markmið MMH er að renna styrkum stoðum undir framleiðslu og sölu minjagripa, skapa störf og starfsvettvang fyrir handverksfólk og hönnuði, og skapa þeim aðilum sem þegar vinna við handverk, matarminjar og hönnun, vettvang þar sem sýningar og námskeið verða mótuð um leið og nýsköpun og nýliðun innan greinarinnar verður efld.

Samstarfsaðilar eru auk Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Þekkingarnet Austurlands, Menningarráð Austurlands, Markaðsstofa Austurlands, Handverksfólk á Austurlandi og Frumkvöðlasetur Austurlands.

Málþingið er klasasamstarf þeirra aðila sem koma að verkefninu. Ferðaminjar er útgangspunktur málþingsins hvort sem um er að ræða handverk eða matarminjar og er það von Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar að klasasamstarfið eigi eftir að ná yfir fjölbreytta framleiðslu þar sem leitast er við að skapa afurðir tengdar náttúru og mannlífi svæðisins. Klasasamstarf er forsenda þess að verkefnið beri árangur og að þeir sem að máli koma vinni saman að þróun og uppbyggingu innan geirans.

 

Málþingið er öllum opið.  Þátttökugjald er kr. 10.000.- Innifalið í þátttökugjaldi er kvöldverður, hádegisverður, kaffi og fundargögn.

Skráning er á: gunna@hornafjordur.is  fyrir 15. apríl n.k.

 

Stuðningsaðilar:

  • Flugfélagið Ernir
  • Frumkvöðlasetur Austurlands
  • Handraðinn
  • Handverk og hönnun
  • Markaðsstofa Austurlands
  • Matís
  • Menningarmiðstöð Hornafjarðar
  • Menningarráð Austurlands
  • Nýheimar þekkingasetur
  • Sveitarfélagið Hornafjörður
  • Vaxtarsamningur Austurlands
  • Þekkinganet Austurlands

 

 

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica