Viðburðir þann

14.04.2008, kl.12:00 Almennur fundur

Uppeldi til ábyrgðar

Á fundinum ætlar Guðlaug Erla Gunnarsdóttir að fara yfir helstu þætti uppeldiskenningarinnar Uppeldi til ábyrgðar og skýra út á hvað hún gengur. Eins og foreldrum er kunnugt hefur starfsfólk grunnskólans unnið að því að tileinka sér þessa kenningu í vetur og ætlar að halda því áfram. Mikilvægt er fyrir foreldra að vita út á hvað þessi hugmyndafræði gengur þannig að þeir geti stutt við þá vinnu sem fram fer í skólanum og nýtt sér kosti þessarar kenningar heima við því þeir eru vissulega margir. Guðlaug Erla Gunnarsdóttir er aðstoðarskólastjóri í Álftanesskóla á Álftanesi en þar hefur verið unnið eftir kenningum Uppeldis til ábyrgðar í nokkur ár. Meistaraprófsverkefni Guðlaugar Erlu fjallar um Uppeldi til ábyrgðar og er hún einn af brautryðjendum stefnunnar hér á landi. Auk þess að vera með fræðslufund fyrir foreldra hittir Guðlaug Erla stýrihópinn sem leiðir vinnuna með Uppeldi til ábyrgðar í skólanum og verður með almennan fund fyrir starfsfólk skólans. Á fundinum munu 10. bekkingar selja samlokur, kaffi og sódavatn svo foreldrar geta borðað á meðan á fundinum stendur Með von um góða mætingu Starfsfólk Grunnskóla Hornafjarðar

Umsjónaraðili

Grunnskóli Hornafjarðar

skrifstofagrunnsk@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/grunnskoli
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica