Viðburðir þann
Afmælisdagskrá
Afmælisdagskrá Skaftafellsþjóðgarðs 40 ára afmæli 15. september 2007
Dagskrá fyrir hádegi
Kl. 10:00-12:30 Söguganga frá Þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli undir leiðsögn þjóðgarðsvarðar og starfsmanna þjóðgarðsins.
Gengið vestur tjaldstæðið, framhjá Gömlu túnum, í Lambhagann, upp með Bæjargili, komið við í Rafstöðinni og síðan farið að Selbænum.
Saga þessara staða rifjuð upp.
Sigurgeir Jónsson frá Fagurhólsmýri og Björn Sigfússon frá Brunnavöllum í Suðursveit leika á harmonikkur við Selbæinn.
Léttar veitingar og orðið laust fyrir þá sem vilja taka til máls.
Að þessu loknu verður hlé á dagskrá fram til kl. 14:00 er hún hefst að nýju í Þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli.
Dagskrá eftir hádegi
14.00-14.05 Þjóðgarðsvörður Ragnar Frank Kristjánsson setur samkomuna.
14.05-14.30 Karlakórinn Jökull frá Höfn í Hornafirði syngur fáein lög.
14.30-14.40 Ávarp Umhverfisráðherra, Þórunnar Sveinbjarnardóttur.
14.40-15.00 Dr. Jack D. Ives kynnir nýja bók um Skaftafell, sem hefur að geyma 1000 ára sögu staðarins. Bókin er gefin út í tilefni af 40 ára afmæli þjóðgarðsins og heitir Skaftafell in Iceland. A thousand years of change. Bókin er einnig gefin út á íslensku.
15.00-15.20 David Murray sérfræðingur frá Þjóðgarðastofnun Kanada, flytur erindið: Þjóðgarðar á norðurslóðum Kanada, tækifæri samfélagsins.
15:30 – 16:15 Veitingar
16:20-16:30 Jónína Aradóttir syngur og spilar á gítar.
16:30-17:00 Landverðir segja frá störfum sínum í þjóðgarðinum
Valgerður Björnsdóttir, Skarphéðinn Óskarsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Málfríður Ómarsdóttir.
17:00-17:15 Ragnar Frank Kristjánsson og Hafdís Roysdóttir, hlutverk þjóðgarðsins í Skaftafelli – framtíðarsýn.
17:16-17:45. Orðið laust.
17:45-18:00 Hljómsveitin Pitchfork rebellion spilar jazz.
18:00 Afmælisdagskrá lýkur.
Umsjónaraðili
SkaftafellsþjóðgarðurSkaftafelli
www.ust.is



