Viðburðir þann

Veðurguðirnir
17.08.2007, kl.23:00 Skemmtanir

Sveitaball í Öræfum

Ungmennafélag Öræfa ætlar að halda sveitaball í Hofgarði föstudaginn 17. ágúst. Hér á árum áður var ágústball í Öræfum árlegt en hefur verið í margra ára hléi. Vegna sívaxandi ferðaþjónustu hefur fólki fjölgað mikið á svæðinu yfir sumartímann og því var ákveðið að láta á það reyna hvort ekki næst að smala á eitt gott ball svona í sumarlok. Húsið opnar kl. 23:00 og Veðurguðirnir sjá um að halda uppi stuðinu eins og þeim einum er lagið. Aldurstakmark er 16 ára og miðaverð er 2000 kr.

Umsjónaraðili

Hofgarður
Öræfum

 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica