Viðburðir þann
Menningarreisa Hæðargarðs
Opinber dagskrá um Þórberg Þórðarson að Hala laugardagskvöldið 21. apríl á vegum Bókmennta- og framsagnarhóps félagsmiðstöðvarinnar Hæðargarðs.
Dagskráin hefst kl. 20.30
Dagskránni stýra leikararnir Soffía Jakobsdóttir og Guðný Helgadóttir. Alls taka þátt í ferðinni um 50 manns og ljóst er að það verður mikið um dýrðir að Hala í Suðursveit þessa helgi.
Skaftfellingar eru velkomnir að koma í Þórbergssetur á laugardagskvöldið að njóta dagskrárinnar með gestunum.
Kaffi verður í boði og opið inn á sýningar í Þórbergssetri.
Það er Bókmennta- og framsagnarhópur félagsmiðstöðvarinnar Hæðargarði 31 sem stendur fyrir menningarferðinni að Hala í Suðursveit ásamt Tungubrjótum félagsmiðstöðvarinnar Dalbrautar 18-20 og bókmenntaklúbb Hana-nú Kópavogi sem starfar á vegum Bókasafns Kópavogs. Þessir hópar hafa verið að lesa og kynna sér verk og ævi Þórbergs Þórðarsonar í vetur. Dagskránni stýra leikararnir Soffía Jakobsdóttir og Guðný Helgadóttir.
Alls taka þátt í ferðinni um 50 manns og ljóst er að það verður mikið um dýrðir að Hala í Suðursveit þessa helgi.
Umsjónaraðili
ÞórbergsseturHala, Suðursveit
thorbergssetur@simnet.is
www.thorbergssetur.is



