Viðburðir þann
Amnesty bréfamaraþon
Sunnudaginn 10. desember, á alþjóðlega mannréttindadaginn, heldur Íslandsdeild Amnesty International bréfamaraþon á Höfn og í Reykjavík.
Maraþonið felst í því að þeir sem mæta skirfa bréf til þolenda mannréttindabrota víða um heim og geta þau bréf eða kort haft áhrif á öryggi einstaklingsins sem sem er í fangelsi yfir hátíðina.
Ekki er gert ráð fyrir að fólk búi yfir tungumálakunnáttu eða sé þjálfað í bréfaskrifum.Maraþonið hefst kl.12 á Kaffihorninu og stendur til kl. 18.
Opið verður fyrir kaffi- og kökusölu á Kafihorninu.
Þetta verður tilvalið tækifæri til að taka sér smá stund á aðventunni frá jólaösinni til að rétta öðrum hjálparhönd.
Umsjónaraðili
Kaffi HorniðHafnarbraut 42
780 Hornafirði
780 Höfn
ingo@eldhorn.is



