Viðburðir þann

Þórbergssetur

13.10.2006 - 14.10.2006, kl. 14:00 Skemmtanir Málþing um Þórberg Þórðarson

Þann 13. og 14. október verður haldið málþing um Þórberg Þórðarson að Þórbergssetri á Hala í Suðursveit. Málþingið er haldið í tilefni af opnun Þórbergsseturs í sumar og auk fjölbreytilegra fyrirlestra verður boðið upp á göngu- og landkynningarferðir um sögusvið Suðursveitarbóka Þórbergs. Málþingið er öllum opið og skráning fer fram hjá Soffíu Auði Birgisdóttur, starfsmanni Háskólaseturs á Höfn, í síma 4708042 og 8482003 eða í tölvupósti: soffiab@hi.is. Þátttökugjald er 3.500 kr. og innifalið í verðinu er kaffi og kvöldverður á föstudag, hádegisverður á laugardag og aðgangur að sýningu á Þórbergssetri. Nauðsynlegt er að koma með hlý útiföt og regnföt, því ,,stundum” rignir í Suðursveit. Ef fólk vill lengja dvölina, og nota sunnudaginn til frekari útiveru og söguferða þá eru merktar gönguleiðir í nágrenni Hala og að Klukkugili í Papbýlisfjalli. Lesa meira
 
American_graffiti_poster2

14.10.2006, kl. 19:30 Skemmtanir American Graffiti - frumsýning

Frumsýning Hornfirska skemmtifélagsins á American Graffiti á Hótel Höfn Lesa meira
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica