Viðburðir þann
Ólafur Elíasson píanóleikari heldur tónleika í Nýheimum
Píanóleikarinn Ólafur Elíasson heldur tónleika í Nýheimum þriðjudagskvöldið 4. júlí. Á efnisskránni eru verk eftir Schubert og Debussy ásamt 7 píanóetýðum eftir Chopin, Liszt, Moszkowski og Schriabin. Etýðurnar (æfingarnar) eru á meðal erfiðustu verka píanóbókmenntanna og eru sumar jafnframt þekktustu píanóverk sögunnar svo sem La Campanella eftir Liszt og Byltingaretýðan eftir Chopin. Á tónleikunum mun Ólafur fjalla um verkin á léttum nótum og er þetta frábært tækifæri fyrir áhugamenn um sígilda tónlist til að kynnast heimi píanótónlistar.
Ólafur var nemandi Rögnvaldar Sigurjónssonar heitins en stundaði framhaldsnám fyrst í París hjá hinum heimsþekkta píanóleikara Vlado Perlemuter og síðar í Englandi, m.a. við konunglega tónlistarháskólann í London (Royal Academy of Music) þar sem hann lauk einleikaraprófi 1994.
Umsjónaraðili
NýheimarLitlubrú



