Viðburðir þann

26.04.2006, kl.10:00 - 15:15 Málþing

Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls

Málþing

Málþing : Skapandi greinar í ríki Vatnajökuls Í Nýheimum miðvikudaginn 26. apríl frá kl. 10:00 til 15:15. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, setur málþingið. Markmið málþingsins er að kynna fyrir þinggestum hvað skapandi greinar eru og eins að kortleggja þær skapandi greinar sem eru til staðar á Suðausturlandi og hvernig hægt er að nýta þær til atvinnusköpunar í ríki Vatnajökuls. Málþingið er öllum opið og þeir sem hafa atvinnu af eða áhuga á hverskyns handverks- og menningarstarfsemi og ferðaþjónustu eru sérstaklega hvattir til að mæta. Skráning fer fram í síma 470 8000 eða á malthing@hfn.is Frumkvöðlasetur Austurlands ehf, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, atvinnumálanefnd Hornafjarðar, Atvinnuþróunarfélag Austurlands, og Impra nýsköpunarmiðstöð á Iðntæknistofnun standa að málþinginu.

Umsjónaraðili

Nýheimar
Litlubrú

 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica