Viðburðir þann

Tengslanet austfirskra kvenna
08.04.2006, kl.15:00 Fundur

T.A.K. opnar heimasíðu

Tengslanet austfirskra kvenna opnar heimasíðu formlega laugardaginn 8. apríl kl. 15:00. Samhliða verða kynningarfundir með aðstoð fjarfundabúnaðar á sex stöðum á Austurlandi einn af þeim stöðum eru Nýheimar. Þar munu Elín S. Harðardóttir og Rannveig Einarsdóttir kynna sprotafyrirtækið Náttúrulega ehf. Á vefnum verða m.a. upplýsingar um félagið og það sem er á döfinni, kynningu á félagskonum og vefumræðum þeirra á milli. Að auki ýmiss fróðleikur sem nýst getur félagskonum. Tengslanet austfirskra kvenna, T.A.K. eru ný samtök kvenna á Austurlandi og er hlutverk þeirra er að sameina konur á Austurlandi, efla samstöðu þeirra, þekkingu og samstarf. Með samtakamætti tengslanetsins er unnt að styrkja hagsmuni kvenna og efla konur persónulega og á þeim vettvangi sem þær kjósa, eða hafa kosið að hasla sér völl. Tengslanetið mun beita sér fyrir því að hvetja konur til áræðni, frumkvöðlastarfs og samfélags- og stjórnmálaþátttöku á opinberum vettvangi. T.A.K. hefur að markmiði að auka sýnileika og tækifæri kvenna, hvort sem er á persónulegum eða opinberum vettvangi og einnig að stuðla að virðingu og verðskuldaðri athygli samfélagsins á framlagi kvenna.

Umsjónaraðili

Nýheimar
Litlubrú

 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica