Viðburðir þann
Ísland altengt
Opinn fundur um fjarskiptaáætlun
Ísland altengt Fjarskiptaáætlun til ársins 2010 kynnt fyrir landsmönnum Samgönguráðuneytið hefur gefið út kynningarrit um Fjarskiptaáætlun til ársins 2010 sem dreift hefur verið inn á öll heimili landsins. Í kjölfarið efnir samgönguráðherra til tæplega þrjátíu kynningarfunda víðsvegar um landið á næstu vikum þar sem markmið Fjarskiptaáætlunar verða kynnt.
Grundvallaratriði Fjarskiptaáætlunar er að landsmenn sitji allir við sama borð óháð búsetu. Ísland verði þannig altengt. Gert er ráð fyrir því að þjónustugjöld einkarekinna fjarskiptafyrirtækja standi undir uppbyggingarkostnaði og rekstri þjónustunnar nema á einstaka svæðum þar sem stjórnvöld munu taka þátt í kostnaði við uppbyggingu.
Í Fjarskiptaáætlun er gert ráð fyrir að allir landsmenn geti tengst háhraðaneti fyrir lok ársins 2007 og er sérstök áhersla lögð á að menntastofnanir landsins njóti slíkrar þjónustu sem allra fyrst. GSM-farsímanetið verður þétt á öllum hringveginum og öðrum helstu stofnvegum, á helstu ferðamannastöðum og minni þéttbýlisstöðum. Jafnframt standi langdræg stafræn farsímaþjónusta til boða um allt land og á miðum við landið eftir að rekstri NMT-kerfisins lýkur. Þá er gert ráð fyrir að allir landsmenn hafi aðgang að gagnvirku stafrænu sjónvarpi og jafnframt að dreifing sjónvarpsdagskrár RÚV, auk hljóðvarps Rásar 1 og Rásar 2, verði stafræn um gervihnött til sjómanna á miðum við landið og strjálbýlli svæða.
Í Fjarskiptaáætlun er lögð áhersla á öryggi almennra fjarskiptaneta innanlands og við umheiminn. Jafnframt lýsa stjórnvöld yfir vilja sínum til að stuðla að lækkun einingaverðs í fjarskiptatengingum milli landa og jöfnun verðs fyrir fjarskiptaþjónustu um land allt.
Umsjónaraðili
Hótel HöfnVíkurbraut 24
780 Hornafirði
780 Höfn
hotelhofn@hotelhofn.is
www.hotelhofn.is



