Viðburðir þann
Opið hús
Í dag ætla hjónin á Seljavöllum þau Elín og Eiríkur að bjóða öllum sem vilja að koma og skoða nýja fjósið sem þau tóku í notkun 2. október á síðast ári. Nýja fjósið er með 69 legubásum fyrir kýr auk aðstöðu fyrir smákálfa. Í því er svokallaður mjaltaþjónn frá Delaval. Mjaltaþjóninn er að störfum allan sólarhringinn og er því enginn ákveðinn mjaltatími. Eiríkur segir að núna séu 50 kýr mjólkandi og í heild eru gripirnir rúmlega 60 í fjósinu ásamt nokkrum ungum kálfum sem eru í stíum. Eiríkur segir kýrnar hafi verið fljótar að aðlaga sig að breyttu húsnæði og háttum og það sé afskaplega gaman að fylgjast með þeim og sjá hvað þær njóta sín vel og eru fljótar að læra á þessi nútímaþægindi.
Meðan opið hús er í fjósinu verða fótboltastelpurnar í 3.fl. kvenna með kaffisölu og heitar vöfflur á fjósloftinu til fjáröflunar fyrir Bretlandsferð sína í sumar. Ath. Þær geta ekki tekið greiðslukort.
Umsjónaraðili
Seljavellir781 Seljavöllum
seljavellir@simnet.is



