Viðburðir þann

Góuhóf 2005 @SMS
04.03.2006, kl.19:00 Tónleikar

Góuhóf í Öræfum

Öræfingar fagna góu á hefðbundinn hátt með góuhófi í Hofgarði nú um helgina nánar tiltekið laugardagskvöldið 4.mars. Heiðursgestir að þessu sinni eru Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og kona hans, Margrét Hauksdóttir. Að venju sjá þeir Freysnesbræður Benedikt og Andri Jónssynir um veitingarnar, sem hafa verið sérlega ljúffengar á undangengnum góuhófum. Skemmtidagskráin verður um einnar klst. löng og verður þar eitt og annað skemmtilegt tínt til. Aðeins munu vera örfáir miðar óseldir af þeim 190 sem komast að en mikið er um að fólk utan héraðsins og frá Reykjavík komi á góuhóf Öræfinga. Í góuhófsnefnd 2006 eru níu manns þ.e. Örn og Brynja á Hofi, Sigurður og María á Hnappavöllum, Guðni í Austurbænum, Sólrún og Kalli á Höfn og Lóa og Heiðar á Höfn.

Umsjónaraðili

Hofgarður
Öræfum

 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica