Viðburðir þann
Öryggismál sjómanna
Málfundur í Nýheimum
Sjómenn á Suð-austurlandi!, - hver er staðan í öryggismálum í dag?
Málfundur um öryggismál sjómanna verður haldinn í Nýheimum.
Dagskrá.
1. Setning fundar. Fundarstjóri: Albert Eymundsson, bæjarstjóri
2. Áætlun um öryggi sjófarenda. Samgönguráðuneyti.
3. Staða verkefna áætlunar um öryggi sjófarenda 2005. Siglingastofnun.
4. Nýungar í öryggisfræðslu sjómanna. Slysavarnarfélagið Landsbjörg og Slysavarnarskóli sjómanna.
5. Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur - Veður og sjólag. Siglingastofnun
6. Kaffihlé (Nýungar í upplýsingakerfi um veður og sjólag).
7. Vaktstöð siglinga. leit og björgun á sjó. Vaktstöð siglinga.
8. Áherslur í öryggismálum sjófarenda. Ingólfur Ásgrímsson útgerðarmaður, talsmaður útgerðarmanna af heimaslóð.
9. Áherslur í öryggismálum sjófarenda. Sigurður Ólafsson skipstjóri, talsmaður sjómanna af heimaslóð.
Almennar umræður um öryggi sjófarenda.
Boðið verður upp á veitingar í kaffihléinu. Sjómenn, útgerðarmenn og aðrir sem láta sig öryggi sjómanna varða er hvattir til að mæta.
Fundirnir eru haldnir í tengslum við áætlun um öryggi sjófarenda og að þeim standa: Samgönguráðuneyti, Slysavarnarfélagið landsbjörg, Landhelgisgæsla íslands, Samband íslenskra kaupskipaútgerða, landssamband íslenskra útvegsmanna, landssamband smábátaeigenda, farmanna- og fiskimannasamband íslands, Vélstjórafélag íslands, Sjómannasamband íslands og Siglingastofnun sem fer með framkvæmd áætlunarinnar.
Umsjónaraðili
NýheimarLitlubrú



