Viðburðir þann
Píanó 4-hent - Tónleikar í Nýheimum
Sunnudaginn 23.október verða haldnir tónleikar í Nýheimum á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Þar munu píanóleikararnir Þórarinn Stefánsson og Jón Sigurðsson leika 4-hent á píanó verk eftir Debussy, Barber, Poulenc og Schubert. Flutningur á píanó 4-hent er ekki algengur hérlendis og vill því svo til að þetta er hérlendur frumflutningur á danssvítu Barbers, Souvenirs op.28. Verk frönsku tónskáldanna Debussy og Poulenc eru eins ólík og hægt er en hafa fest sig í sessi sem ein vinsælustu verkin í 4-hent flokknum. Eftir Schubert eru til mörg 4-hent verk af öllum stærðum og gerðum en þykir mörgum Fantasía op. 103 eitt albesta verk hans að öllu leyti.
Vinsældir píanósins urðu mjög miklar strax og það var kynnt til sögunnar um 1700. Jón Sigurðsson og Þórarinn Stefánsson stunduðu báðir nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og síðar framhaldsnám í Þýskalandi. Þeir hafa komið fram víða með ýmsum tónlistarmönnum.
Þessir tónleikar eru samstarfsverkefni Félags íslenskra tónlistarmanna og Menningarmiðstöðvar og Menningarmálanefndar Hornafjarðar með styrk frá Menntamálaráðuneytinu. Verð aðgöngumiða kr. 1.000.- en frítt fyrir nemendur Tónskólans. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00
Umsjónaraðili
NýheimarLitlubrú



