Viðburðir þann

Sign
13.10.2005, kl.20:00 Tónleikar

Hljómsveitin Sign ásamt Modis í Sindrabæ

Hljómsveitin Sign spilar í Sindrabæ ásamt Modis, fimmtudaginn 13. október. Hljómsveitin Sign hefur nýverið sent frá sér geisladiskinn "Thank God for Silence". Sign skipa Zólberg sem sér um söng og gítar, Addi G. á gítar, Silli á bassa og Egill Örn á trommur. Sign hefur unnið að gerð nýjustu plötu sinnar með hléum í tvö ár en sl. sumar barst þeim liðstyrkur þegar hljóðupptökustjórinn Mark Plati frá New York kom til að vinna að þriggja laga kynningardiski með þeim. Mark hefur unnið með fjölda listamanna allt frá Prince til Phillip Glasser, David Bowie, Bee Gees, Al Green, Nina Hagen, New Order og Suzanne Vega svo fáeinir séu nefndir. Mark tók vin sinn og gítaristann Earl Slick með sér, en Slick er að margra mati goðsögn í lifanda lífi og hefur meðal annars unnið með David Bowie í yfir 20 ár og spilaði inn á Milk & Honey með John Lennon. Lögin sem þeir unnu með Sign enduðu öll á plötunni en þar á meðal er A Little Bit sem nú er í spilun á Rás 2, XFM og Xinu. Sveitin hefur áður unnið að upptökum og útsetningum sjálf en lét á það reyna að vinna með alþjóðlegum upptökustjóra. Samstarfið reyndist gjöfult og hefur skilað sér í hnitmiðaðra og kjarnaðra rokki heldur en áður hefur heyrst frá Sign. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 og miðaverð er 500 krónur.

Umsjónaraðili

Sindrabær
Hafnarbraut
780  Höfn

 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica