Viðburðir þann

Bergþór, Þorgeir og Raggi Bjarna
23.07.2005, kl.20:30 Skemmtanir

Söngskemmtun

Raggi Bjarna, Bergþór Páls og Þorgeir Ástvalds

Laugardaginn 23. júlí næstkomandi verða tónleikar í Nýheimum. Það eru þeir Ragnar Bjarnason og Bergþór Pálsson sem munu syngja og skemmta ásamt Þorgeiri Ástvaldssyni undirleikara. Þeir félagar halda ekki aðeins tónleika hér á Hornafirði því þeir verða einnig með tónleika á hátíðinni Franskir dagar á Fáskrúðsfirði sem haldin er nú um helgina. Þar eru þeir hluti af árlegri söngskemmtun sem er haldin í kvöld. Ragnar Bjarnason og Bergþór Pálsson hafa verið meðal ástsælustu söngvurum þjóðarinnar til fjölda ára og ætti því enginn að vera svikinn af þessum tónleikum. Á efnisskránni hjá þeim eru lög sem flestir ættu að þekkja og hafa lengi hljómað í útvarpinu ásamt frönskum lögum. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30.

Umsjónaraðili

Nýheimar
Litlubrú

 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica