Viðburðir þann
Jeppa og gönguferð
Frá Ferðafélaginu.
Jeppa og gönguferð helgina 15.-17. júlí. Áhugaverð ferð í fallegu umhverfi.
Föstud 15 júlí:
Farið frá Höfn um kl. 17:00 í Vöðlavík, sem er næsta vík við Eskifjörð, gist þar í 2 nætur í skála Ferðafélags Fjarðamanna. ( einnig má tjalda).
Laugard 16 júlí:
Keyrt niður í Viðfjörð og farið í ca.. 3 ja tíma göngu þar með leiðsögn, farið aftur til baka í skála grillað sameiginlega. Kvöldganga í Vöðlavík.
Sunnud 17 júlí:
Tekið saman og kl. 11:00 farið yfir á Norðfjörð um Oddskarð. Þar sem Björgunarbáturinn tekur á móti okkur og flytur okkur út í Hellisfjörð sem er ca. ½ tíma sigling skoðum okkur þar um og göngum svo þaðan yfir á Norðfjörð sem er ca. 3ja tíma, einnig er líka hægt að fara með bátnum til baka.
Verð ca. 5-6000 pr. mann 12 ára og eldri, 6-12 ár 1500.
Upplýsingar og skráning hjá Rögnu fyrir 11. júli. Í síma 478-1738 / 662-5074.
Ferðanefndin.
Umsjónaraðili
Ferðafélag Austur-Skaftafellssýsluferdafelag@gonguferdir.is
http://www.gonguferdir.is/



