Viðburðir þann

Gamlabúð
24.03.2005 - 28.03.2005, kl.14:00 - 18:00 Menning

Gamlabúð

Safnadagar verða í Menningarmiðstöð Hornafjarðar yfir páskana og verða söfnin opin alla dagana frá kl.14 til 18. Í Gömlubúð verður mikið um að vera, þar verða margir fágætir og merkilegir gripir sem eru í einkaeign sýndir. Leitað hefur verið til safnara á svæðinu um að sýna söfn sín í Gömlu búð og hafa margir orðið við þeim tilmælum og verða þar t.d. skeiðasafn, mynt- og seðlasafn, frímerkja-og kveikjarasafn, fuglar, könnur, pennasöfn o.m.fl. Þá má minna á stórt og merkilegt fugla og eggjasafn í Gömlubúð og tilvalið að sýna börnunum það nú þegar vorið fer að nálgast og farfuglarnir að koma.

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica