Viðburðir þann
Fjölskyldudagur á Hornafirði
Sprikl, sprell og sýningar
Fjölskyldudagur í samstarfi við Sindra og æskulýðs- og tómstundaráð. Margt verður hægt að gera sér til gamans, svo sem að fara í sundlaugina, Sporthöllina, Nýheima, prófa litbolta og hjólaskauta, fara í íþróttahúsið á Höfn, félagsmiðstöðina, bókasafnið, jöklasýningu, Pakkhúsið og Sindrabíó. Fyllsta ástæða er til að hvetja alla íbúa sveitarfélagsins til að vera virkir þátttakendur í uppákomum þennan fjölskyldudag.
DAGSKRÁ
Sundlaug Hafnar Frítt í sund frá kl. 09:00 – 15:00.
Leiksund með tónlist frá 10:30 – 12:30
Sporthöllin kl. 10:30 – 12:30 Frítt í tækin fyrir fjölskylduna
Nýheimar kl. 12:40 – 14:00 Allir velkomnir í sal Nýheima að þiggja léttar veitingar í boði bæjarstjórnar Leikatriði, tónlistarfólk kíkir við og bæjarfulltrúar lesa upp
Í miðbænum kl. 13:30 – 14:30 Hjóla- og brettafólk á svæðinu og Litboltafélagið
Íþróttahúsið Höfn kl. 14:00 – 17:00 Umf. Sindri býður í sprell og spark
Félagsmiðstöðin Þrykkjan 14:00 – 17:00 Börn og unglingar koma í heimsókn með mömmu og pabba
Menningarmiðstöð Hornafjarðar kl. 13:00- 17:00
Bókasafn frá 13 – 17, sýning á bandarískum barnabókmenntum
Jöklasýning frá 14 – 16, ókeypis aðgangur
Pakkhús frá 13 – 18, sýningin „handverk og hönnun”, ókeypis aðgangur
Sindrabíó kl. 15:30 og 17:30 Bíó (Thunderbird) og popp í boði Skinneyjar – Þinganess. Takmarkaður sætafjöldi Allir íbúar eru hvattir til þátttöku í fjölskyldudeginum !
Umsjónaraðili
Sveitarfélagið HornafjörðurHafnarbraut 27
780 Hornafirði
780 Höfn
hornafjordur@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is



