Viðburðir þann

Rauði Krossinn
01.11.2004, kl.20:00 Fundur

Fundur um geðheilbrigðismál

Hornafjarðardeild Rauða kross Íslands boða til opins fundar um geðheilbrigðismál í Nýheimum og mun gestur fundarins verður Bjarni Arnarson en hann hefur haldið fyrirlestra víða í Framhaldsskólum landsins á vegum Geðræktar. Bjarni mun ræða um reynslu sína af því að veikjast alvarlega af geðsjúkdómi og hvernig hann hefur náð að vinna heilsuna aftur og viðhalda henni. Hvernig eflir maður geðið? Hvað ber að varast? Hvernig þekkir maður einkennin? Eru mestu fordómarnir hjá manni sjálfum? Þessar spurningar og fleiri verða ræddar og fjallað verður um málefni tengd geðröskunum og geðrækt. Fundurinn verður mánudaginn 1. nóvember 20. Enginn aðgangseyrir og allir eru velkomnir

Umsjónaraðili

Rauði kross Íslands - Hornafjarðardeild
Víkurbraut 2

redcross@hornafjordur.is
http://redcross.is
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica