Viðburðir þann

Kammersveitin Ísafold
23.08.2004, kl.20:00 Tónleikar

Kammersveitin Ísafold á Hornafirði

Kammersveitin Ísafold skemmtir í Nýheimum á Höfn nk. föstudag kl 20.00. Þetta er í annað sinn sem Kammersveitin Ísafold sækir Hornfirðinga heim. Tónleikarnir fyrir ári síðan eru áheyrendum eftirminnilegir fyrir að vera kraftmiklir og gefandi eða eins og segir í gagnrýni Mbl. 23. ágúst 2003: “..allt leikið af stakri innlifun og hrífandi snerpu.” Hljóðfærin sem þau leika á eru fiðlur, lágfiðla, knéfiðla, kontrabassi, flauta, óbó, klarinett, fagott, horn, trompet, básúna, harpa, píanó og slagverk. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason. Þar sem nær allir meðlimir Ísafoldar eru í námi erlendis er hljómsveitin aðeins starfandi á sumrin. Meðlimir hljómsveitarinnar í sumar, 2004, eru 18 talsins. Það er líka gaman að geta þess að Hljómsveitin Ísafold sá um undirleik á lagi Egils Jónssonar, Hornafjörður, fyrir Karlakórinn Jökul á væntanlegum disk þeirra í haust og karlakórinn mun syngja það lag með þeim á tónleikunum. Sjálf lýsa þau tilurð sinni þannig: “Kammersveitin Ísafold var stofnuð í byrjun árs 2003. Það var draumur okkar að búa til hljómsveit samansetta af ungum hljóðfæraleikurum sem væru á lokastigi í tónlistarnámi sínu, hljómsveit þar sem við værum okkar eigin herrar

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica