Viðburðir þann

Dýrslegt fjöldasjálfsmorð
17.08.2004, kl.20:00 Sýning

Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð í Sindrabæ

“Með ærslafullum leik og lífsþrótti” flytur Leikfélagið Landsleikur, leikritið Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð. Leikfélagið er skipað hópi ungmenna á aldrinum um tvítugt, sem fékk Ólaf Egil Egilsson til að gera leikgerð byggða á skáldsögunni Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð eftir Finnann, Arto Passilinna. Hópurinn hefur lagt nótt við dag til að útkoman yrði sem best. Þau hafa reynslu af leikstarfi með Herranótt í MR en auk þess sóttu þau námskeið í hreyfingu og spuna hjá Ólöfu Ingólfsdóttur dansara og námskeið í tangódansi hjá Bryndísi Halldórsdóttur og Hany Handaya. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson, en hann hefur náð góðum árangri í vinnu með ungu fólki. Hönnun og umsjón búninga er í höndum Hallgerðar Hallgrímsdóttur, sem bjó á Höfn sem barn og Guðmundur Finnbogason sá um hönnun lýsingar. Hér á Höfn nýtur hópurinn einnig krafta Ingólfs Baldvinssonar ljósamanns hjá Leikfélagi Hornafjarðar. Í leikdómi sem birtist í Morgunblaðinu 4.ágúst sl. segir m.a. “Dauðinn, eða pælingin um dauðann, fjallar auðvitað um lífið í öllum sínum myndum. Skáldsagan er feikna vel skrifuð. ... Leikgerð Ólafs Egils nær vel að fanga svartan húmorinn, kaldhæðnina og sannfærandi lýsingar á finnsku þjóðarsálinni ásamt leiftrandi lífsgleðinni.” Og síðar segir einnig: “ Leikfélagið Landsleikur kemur sem ferskur andvari inn í sumarið, geislandi af lífsorku með hugrökku vali sínu á efni sem erfitt er að ræða; sjálfsvígum og baráttunni við þau. Þeim hefur tekist mjög vel upp með efni, val á höfundi leikgerðar og val á leikstjóra og ástæða er til að hrópa húrra fyrir þeim”

Umsjónaraðili

Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Litlubrú 2, Nýheimum
780 Hornafirði
780  Höfn

menningarmidstod@hornafjordur.is
www.hornafjordur.is/menningarmidstod
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica