Viðburðir þann

Það verður gaman á þjóðhátíð
17.06.2004, kl.11:00 Skemmtanir

Þjóðhátíðardagskrá 17. júní

Mikið verður um að vera á þjóðhátíðardaginn 17.júní bæði á Höfn og í Nesjum. Hátíðarhöldin á Höfn eru í umsjón 6.flokks Knattspyrnudeildar Sindra. Hátíðarhöldin á Höfn hefjast kl.11 með Messu í Hafnarkirkju og um leið víðavangshlaupi frá Íþróttahúsi Heppuskóla. Skrúðgangan fer síðan frá Vesturbrautarplaninu kl.13:30 undir stjórn Lúðrasveitar Hornafjarðar og heldur upp á Hóteltún þar sem hátíðarhöldin byrja kl.14. Það verður margt skemmtilegt um að vera þar fyrir unga sem aldna og að lokinni dagskrá verður boðið upp á grillaðar pylsur. Sindrabíó sýnir Pétur Pan kl. 17 og er myndin með íslensku tali. Fjölskyldudansleikurinn sem er ómissandi þáttur í hátíðarhöldnunum verður haldin á planinu við Lönguhóla. Hátíðarhöldin í Nesjum hefjast kl.13 þar sem farið verður í vagni upp að Ketillaugarfjalli, þar verður gengið um Krossbæjarskarð, komið niður við Stúf, grillað og farið í leiki. Þeir sem ekki treysta sér í gönguna er velkomið að mæta við Stúf og þiggja veitingar. Samkvæmt spánni þá á að viðra vel til hátíðarhalda en ef svo ólíklega vildi til að hún breyttist og ekki væri hægt að halda hátíðina úti þá flytjast hátíðarhöldin á Höfn inn í Íþróttahús.
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica