Viðburðir þann

10.11.2003 - 16.11.2003 Afþreying Í ljósaskiptunum – Hafið og Norðrið

Norræn bókasafnsvika 10. – 16. nóvember

Dagskrá vikunnar hefst á sama tíma í bókasöfnum á Norðurlöndunum með upplestri á sama texta. Í ljósaskiptunum, kl. 18:00, verða ljósin slökkt og á Höfn mun Elín Magnúsdóttir, forseti bæjarstjórnar, lesa upp við kertaljós líkt og á öðrum bókasöfnum. Textinn er úr inngangi bókarinnar Garman og Worse eftir norska rithöfundinn Alexander Kielland. Þemað í ár er Hafið og norðrið. Hafið bindur Norðurlöndin og í gegnum tíðina hefur það verið okkar mikilvægasta samgönguleið og lífsbjörg en líka ástæða ófriðar og átaka. Einnig er sótt til hafs í frístundum í leit að endurnæringu. Í Menningarmiðstöð Hornafjarðar ljúkum við bókasfnsvikunni með upplestri setts bæjarstjóra, Ingu Jónu Halldórsdóttur, yfir fiskisúpu í hádeginu á föstudeginum 14. nóvember. Við vonum að gestir okkar eigi eftir að njóta samverunnar og hafa gaman af. Lesa meira
 
Ferðaklúbburinn 4x4

12.11.2003, kl. 20:00 Almennur fundur Kynningar- og/eða stofnfundur Hornafjarðardeildar

Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4 boðar til fundar í húsnæði Vökuls, Víkurbraut 4. kl 20:00. Fundarefni: Kynning á starfsemi ferðaklúbbsins 4x4 Hugsanleg stofnun Hornafjarðardeildar. Á fundinn mæta: Kjartan Gunnsteinsson formaður landssamtakanna og Hallgrímur Óli formaður Húsavíkurdeildarinnar sem mun útskýra hvaða hag jeppafólk á Húsavík og nágrenni hefur af starfi 4x4, og hvernig starfi deildarinnar er háttað. Lesa meira
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica