Viðburðir þann

10.11.2003 - 16.11.2003 Afþreying Í ljósaskiptunum – Hafið og Norðrið

Norræn bókasafnsvika 10. – 16. nóvember

Dagskrá vikunnar hefst á sama tíma í bókasöfnum á Norðurlöndunum með upplestri á sama texta. Í ljósaskiptunum, kl. 18:00, verða ljósin slökkt og á Höfn mun Elín Magnúsdóttir, forseti bæjarstjórnar, lesa upp við kertaljós líkt og á öðrum bókasöfnum. Textinn er úr inngangi bókarinnar Garman og Worse eftir norska rithöfundinn Alexander Kielland. Þemað í ár er Hafið og norðrið. Hafið bindur Norðurlöndin og í gegnum tíðina hefur það verið okkar mikilvægasta samgönguleið og lífsbjörg en líka ástæða ófriðar og átaka. Einnig er sótt til hafs í frístundum í leit að endurnæringu. Í Menningarmiðstöð Hornafjarðar ljúkum við bókasfnsvikunni með upplestri setts bæjarstjóra, Ingu Jónu Halldórsdóttur, yfir fiskisúpu í hádeginu á föstudeginum 14. nóvember. Við vonum að gestir okkar eigi eftir að njóta samverunnar og hafa gaman af. Lesa meira
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica